tax free
 





    Iceland Refund
    Aðalstræti 2
    101 Reykjavík

    Tel:  +354 564 6400
    Fax: +354 564 6400

Hvað er Tax Free?

Þegar verslað er Tax Free þýðir það að hægt er að fá virðisaukaskattinn endurgreiddan af þeim vörum sem fluttar eru úr landinu. Virðisaukaskatturinn er notaður til að greiða fyrir ýmsa félagslega þjónustu sem þegnar landsins geta nýtt sér. Þeir sem eru með lögheimili erlendis og nýta sér því ekki umrædda þjónustu hérlendis eiga því rétt á að fá þennan skatt endurgreiddan.

Meginreglurnar þrjár til að geta verslað Tax Free
- Viðkomandi verður að vera skráður með búsetu erlendis.
- Versla fyrir kr. 4000.- eða meira
- Flytja vöruna úr landi innan þriggja mánaða frá kaupdegi.

Hversu hár er virðisaukaskatturinn á Íslandi ?

Virðisaukaskatturinn sem er 24,5% á flestum vörum en 14% á matvælum og bókum. Þegar skatturinn er reiknaður af söluverðinu samsvarar hann annars vegar 19,68% í hærra skattþrepinu en 12,28% í því lægra.

Dæmi um hærra skattþrepið:
Verð á vöru m/vsk er kr.12.450
Virðisaukaskattur = 12.450*0,1968 = 2450

Þar sem virðisaukaskatturinn hérlendis er sá næsthæsti í heimi getur endurgreiðslan skipt miklu máli fyrir ferðamenn sem koma til Íslands.

Af hverju er endurgreiðslan aðeins 15% ?  
Mismunurinn er þóknun sem skiptist á milli verslana, endurgreiðsluaðila og þjónustuaðilans.

Hver er lágmarksupphæðin til að verslaTax Free ?

Þegar verslað er fyrir kr. 4.000.- í sömu verslun geta ferðamenn nýtt sér Tax Free.