tax free
 





    Iceland Refund
    Aðalstræti 2
    101 Reykjavík

    Tel:  +354 564 6400
    Fax: +354 564 6400

Hvernig versla ég Tax Free á Íslandi?

Það er hvergi einfaldara að versla Tax Free en á Íslandi.

Í þremur einföldum skrefum færð þú 15% afslátt af þeim vörum sem þú tekur með þér úr landinu.

1. Versla
Verslaðu þar sem þú sérð Iceland Refund merkið og fáðu Tax Free ávísun hjá starfsmanni verslunarinnar.

2.Tollstimpill
Ef endurgreiðslan nemur hærri fjárhæð en kr.5.000.- ferðu til tollsins á þeim stað sem þú yfirgefur landið og lætur þá staðfesta útflutning vörunnar með tollstimpli.

3. Endurgreiðsla
Greitt inn á kreditkort:
Settu kreditkortanúmerið á Tax Free formið. Skilaðu síðan forminu af þér þar sem þú ferða af landi brott eða sendu það til okkar í Iceland Refund umslagi, þér að kostnaðarlausu.

Greitt fyrirfram:
Farðu á einn af fimm endurgreiðslustöðum Iceland Refund og fáðu endurgreitt áður en þú yfirgefur landið. Skilaðu síðan forminu af þér þar sem þú ferða af landi brott eða sendu það til okkar í Iceland Refund umslagi, þér að kostnaðarlausu.

Greitt í peningum:
Fáðu endurgreitt í reiðufé í Landsbankanum Leifsstöð,Reykjavíkurflugvelli eða um borð í Norrænu.