

Í febrúar 2004 flutti Iceland Refund skrifstofur sínar úr Bæjarhrauni 8 í Hafnarfirði í Gamla Geysishúsið við Aðalstræti 2 í Reykjavík.
Húsið er staðsett í hjarta miðbæjarins og ásamt því að hýsa skrifstofur Iceland Refund er þar rekin stærsta upplýsingamiðstöð landsins. Einnig rekur Höfuðborgarstofa sína starfsemi í húsinu og ekki má gleyma einum besta veitingastað landsins, Sjávarkjallaranum.
City Centre Cash Refund er staðsett á jarðhæðinni í upplýsingamiðstöðinni en þar geta ferðamenn fengið Tax free ávísanir sínar endurgreiddar í íslenskum krónum áður en þeir halda af landi brott.
Til baka